Skrópaði í vinnuna fyrir kærustuna

Tyga er 25 ára og Kylie Jenner er 17 ára, …
Tyga er 25 ára og Kylie Jenner er 17 ára, þau eru sögð vera par. Samsett mynd /AFP

Tónlistamaðurinn Tyga og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner eru sögð vera nýjasta Hollywood-parið en samband þeirra er nokkuð umdeilt vestanhafs því Tyga er 25 ára gamall en Kylie er 17 ára.

Sambandið er glænýtt en nýjustu fregnir herma að þau hafi nú þegar lent í vandræðum vegna aldursmunarins. Tyga átti nefnilega að koma fram á vinsælum næturklúbbi seinustu helgi og skemmta gestum. Vissulega vildi hann hafa kærustu sína sér við hlið en Kylie er ekki með aldur til að sækja skemmtistaði í Bandaríkjunum.

Tyga er sagður hafa grátbeðið eigendur staðarins og skipuleggjendur kvöldsins um að hleypa kærustu sinni inn en allt kom fyrir ekki. Á endanum hætti Tyga við að mæta. Þessu er greint frá á heimasíðu TMZ.

Skipuleggjendur kvöldsins voru hundfúlir út í Tyga enda mætti margt fólk til að skemmta sér með honum þetta kvöld. Það fólk þarf ef til vill að bíða í fjögur ár eða þar til Kylie nær 21 árs aldri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant