Dóttir leikkonunnar Demi Moore, Tallulah Belle Willis, er nýkomin úr meðferð en þar lét hún snoða sig. Núna skartar hún sömu „klippingu“ og móðir hennar gerði á sínum tíma.
Árið 1997 þurfti Moore að raka af sér hárið fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni G.I. Jane en Moore þótti taka sig nokkuð vel út án hárs.
Hin 20 ára Tallulah virðist þá vera ánægð með nýja útlitið en hún hefur birt nokkrar myndir af sjálfri sér á Instagram á undanförnum dögum. Þá birti hún einnig gamla mynd af móður sinni þar sem hún var snoðuð. Hún skrifaði undir myndina að hún væri þakklát fyrir að gott höfuðlag væri ættgengt.