Reglulega lætur grínistinn Jimmy Kimmel frægt fólk lesa illkvittin tíst um sjálft sig. Í myndbandinu hér að neðan má sjá frægt fólk eins og Gwyneth Paltrow, Lena Dunham, Britney Spears, John Stamos og Ty Burrell lesa ljóta hluti um sig sem fólk lætur út úr sér á netinu.
„Mér líður eins og Britney Spears sé að ásækja mig í útvarpinu. Hættu að neyða í mig ógeðið þitt þreytta herfa!“ sagði einn tvístari til að mynda um söngkonuna Britney Spears.
Fyrr á árinu gerði þingkonan Vigdís Hauksdóttir það sama í Monitor TV og má sjá það hér.