Fékk nálgunarbann á „sálufélagann“

Ryan Gosling á brjálaða aðdáendur.
Ryan Gosling á brjálaða aðdáendur. AFP

Kyntröllið Ryan Gosling hefur fengið nálgunarbann á ágengan aðdáanda sem hefur áreitt hann í nokkra mánuði. Aðdáandinn er vægast sagt heltekinn af Gosling og neitaði að hætta að senda honum skilaboð og elta hann.

Grace Marie Del Villar hefur elt Gosling í um þrjá mánuði, hún heldur því fram að hún sé tvíburinn hans og sálufélagi samkvæmt heimildum TMZ.

Gosling fór því fram á nálgunarbann og greindi frá því að Del Villar hefði m.a. sent sér óviðeigandi skilaboð og pakka. Þá mun hún einnig hafa sent systur Goslins talskilaboð.

Það sem fyllti mælinn var að Del Villar ferðaðist alla leið frá New York til Los Angeles til að tilkynna Gosling að hún væri tvíburi hans. Gosling sótti þá um nálgunarbannið seint í október en nú hefur það tekið gildi, Del Villar er gert að halda sig í ákveðinni fjarlægð frá Gosling, kærustu hans, dóttur og systur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson