TónlistarmaðurinnDave Grohl hefur viðurkennt að þættirnir Keeping Up With The Kardashians hafi leitt til þess að hann hætti að reykja marijúana.
„Ég hætti að neyta eiturlyfja þegar ég var 20 ára en datt svo í hug nýlega að ég skyldi halda áfram að reykja gras vegna svefnleysis. En ég festist fyrir framan sjónvarpið í 45 mínútur, að horfa á The Kardashians, og það tók mig á taugum,“ sagði Grohl í viðtali við dagblaðið Sun.
„Ég sagði við sjálfan mig: „Ég geri þetta sko ekki aftur. Þetta hentar mér ekki,“ útskýrði Grohl sem var greinilega ekki hrifinn af þáttunum um Kardashian-fjölskylduna.