Keppandi Ink Master kýldi kærastann

Madison Loftis kýldi kærastann og lenti í vandræðum.
Madison Loftis kýldi kærastann og lenti í vandræðum. Skjáskot af TMZ.com

Húðflúrlistakonan Madison Loftis, betur þekkt sem Maddie la Belle, er keppandi í þáttunum Ink Master. Loftis er greinilega skapstór því hún gaf kærasta sínum einn á lúðurinn og endaði í fangageymslu vegna þess.

Loftis og kærasti hennar rifust það heiftarlega nýverið að lögregla var kölluð til. Loftis segir þau bæði hafa slegið frá sér en ekki vildi betur til en svo að kærasti hennar fékk ljótt glóðarauga. Þegar lögreglan kom á svæðið var ákveðið að færa Loftis í fangageymslu vegna þess hve illa útleikinn kærasti hennar var, hins vegar sást ekkert á Loftis. Þessu er greint frá á heimasíðu TMZ.

Kærasti Loftis vildi ekki leggja fram kæru en lög sem gilda í North Carolina, þar sem þau búa, segja til um að hver sá sem beitir heimilisofbeldi og veldur meiðslum skal færður í fangageymslu.

Loftis segir þau skötuhjú hafa fyrirgefið hvort öðru og allt sé fallið í ljúfa löð aftur. „Alla daga, allan daginn,“ sagði Loftis, spurð að því hvort hún ætlaði að kýla kærastann sinn aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant