Tímabundin brjóstastækkun nýtt æði

Nýja aðferðin Insta Breast er hugsuð fyrir konur sem hafa …
Nýja aðferðin Insta Breast er hugsuð fyrir konur sem hafa ekki tíma til að fara í brjóstastækkun. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fólki gefst nú kostur á því að fá sér tímabundna brjóstastækkun, með nýju aðferðinni Insta BreastAðferðin stækkar brjóst um eina til eina og hálfa skálastærð, en virkni hennar varir aðeins í sólarhring.

Sólarhringslausnin er unnin úr saltlausn og viðbættu ónefndu efni sem notað er við lækningar. Upphafsmaður Insta Breast er bandaríski lýtalæknirinn Norman Rowe. Aðgerðin tekur um 20 mínútur og kostar á milli 300 og 500 þúsund krónur. 

„Líkaminn losar sig við saltlausnina. Þetta er hugsað fyrir konur sem hafa ekki tíma til að fara í brjóstastækkun,“ sagði Rowe í samtali við ABC fréttastofuna. Þá segir hann aðferðina hugsaða fyrir þær konur sem vilja vita hvernig það er að vera með brjóstapúða. 

„Þú getur notað ímyndunaraflið og sett púða í brjóstahaldara, en það er allt annað að fá tilfinningu fyrir þeirri þyngd sem fylgir stærri barmi og hvernig það væri að lifa með stærri brjóst.“

Nú þróar Rowe einnig tímabundna brjóstastækkun sem mun endast í tvær vikur. „Sólarhringur er frábær. En það er samt bara sólarhringur.“ Nýju aðferðina kallar hann „vacation boobs“ eða orlofsbrjóst, og segir hann þau fullkomna lausn þegar gera á eitthvað sérstakt eins og að gifta sig eða fara í ferðalag.

Þýsku útvarpsmennirnir John and Rasheed, ákváðu að prófa hvernig það væri að vera með brjóst og nýttu sér því Insta Breast aðferðina. Mennirnir fengu hvor um sig 700 ml af saltlausninni í hvort brjóst og voru því í C-skálum í sólarhring. Hér fyrir neðan má sjá reynslu útvarpsmannanna af tímabundnu brjóstunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler