Leikkonan og dýravinurinn Hayden Panettiere fjármagnaði nýverið smíði á nýju búri fyrir górillu í úkraínskum dýragarði en górillan bjó við óviðunandi aðstæður að mati Panettiere.
Panettiere hefur eytt talsverðum tíma í Úkraínu undanfarið en unnusti hennar, Wladimir Klitschko, er þaðan. Í einni heimsókn sinni til heimalands Klitschkos fóru þau í dýragarðinn í Kiev, þar sá Panettiere aðbúnað górillunnar og fannst hann afar slæmur. Hún brá á það ráð að láta smíða nýtt svæði fyrir górilluna sem heitir Tony.
Panettiere kveðst hafa myndað sérstök tengsl við Tony og þess vegna hafi hún viljað hjálpa honum.
„Í hvert skipti sem ég labbaði frá búrinu hans áttaði ég mig á því hversu fáránlega lítið þetta svæði var fyrir þetta stóra dýr. Þetta leit út eins og fangaklefi,“ sagði Panettiere í nýjum pistli sem hún birti á blogginu sínu.