Skreytti með uppblásnum getnaðarlimum

Skjáskot af Instagram-síðu Miley Cyrus.
Skjáskot af Instagram-síðu Miley Cyrus. Instagram

Söngkonan Miley Cyrus hélt upp á 22 ára afmæli sitt á vinsælum skemmtistað um helgina. Cyrus, sem er ekki vön að fara hefðbundnar leiðir í lífinu, lét skreyta skemmtistaðinn með uppblásnum geimverum og getnaðarlimum.

Cyrus hélt upp á afmælið sitt á FactoryNightclub skemmtistaðnum í Hollywood á laugardaginn. Að sjálfsögðu mætti nýi kærastinn hennar, Patrick Schwarzenegger, í veisluna en hann klæddist flugstjórabúningi.

Cyrus lét skreyta skemmtistaðinn sérstaklega fyrir veisluna og valdi óvenjulegt þema. Veggir staðarins voru nefnilega skreyttir með uppblásnum kynlífsleikföngum, geimverum og glóandi kannabis-laufblöðum. Sjálf mætti Cyrus í bíl sem er í laginu eins og getnaðarlimur. Cyrus var þá mjög áberandi í klæðaburði þetta kvöld en hún klæddist bleikum pels og stuttum kjól.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant