Brooklyn Beckham lét gata eyrað um helgina

David og Victoria Beckham ásamt sonum sínum. Brooklyn er elstur.
David og Victoria Beckham ásamt sonum sínum. Brooklyn er elstur. TAL COHEN

Hönnuðurinn Victoria Beckham heimsótti verslunarmiðstöð í London um helgina ásamt syni sínum, Brooklyn, sem er 15 ára. Tilgangur heimsóknarinnar var að láta gata eyra Brooklyns.

Gestum verslunarmiðstöðvarinnar var brugðið þegar þau sáu Beckham og son hennar í einni skartgripaversluninni. Frú Beckham mun hafa aðstoðað son sinn við að velja rétta eyrnalokkinn áður en eigandi búðarinnar gataði eyra Brooklyns.

„Þau báðu okkur ekki að loka versluninni. Nokkrir viðskiptavinir tóku eftir þeim, en allir voru rólegir. Ég held að fólk hafi ekki trúað þessu,“ sagði eigandi búðarinnar.

„Þau völdu dýrasta eyrnalokkinn en Victoria bað hann [Brooklyn] að velja minni týpuna svo þetta væri ekki of áberandi.“ Eftir að eigandi verslunarinnar hafði gatað eyra Brooklyns fóru þau að afgreiðslukassanum þar sem Victoria greiddi 45 pund (8.700 krónur) fyrir eyrnalokkinn og þjónustuna. Þá mun hún einnig hafa keypt ódýrar hárlengingar í leiðinni.

„Þau eru indæl fjölskylda.“

Brooklyn Beckham er kominn með gat í eyrað.
Brooklyn Beckham er kominn með gat í eyrað. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson