Tjáði sig opinberlega um móðurhlutverkið

Eva Mendes og Ryan Gosling eignuðust sitt fyrsta barn fyrir …
Eva Mendes og Ryan Gosling eignuðust sitt fyrsta barn fyrir nokkrum vikum síðan. Mynd/Dave Allocca/AllOverPress

Leikkonan Eva Mendes tjáði sig nýverið um móðurhlutverkið í viðtali sem birtist á veftímaritinu Violet Grey en þetta er í fyrsta sinn sem hún talar opinberlega um dóttur sína, Esmeröldu Amad, sem fæddist fyrir sex vikum.

Mendes segist hafa upplifað „villtar nætur“ síðan dóttir hennar kom í heiminn. Hún viðurkennir að hún sé „örmagna“.

„Ég hélt að allar mínar villtu nætur væru liðnar en þetta eru einhverjar villtustu nætur sem ég hef upplifað,“ sagði Mendes sem kaus að ráða ekki barnapíu þegar Amad fæddist.

„Eins og er gerum við þetta án hjálpar frá barnapíu en ég er opin fyrir hugmyndinni um að hafa barnapíu í framtíðinni. Fyrir mér snýst móðurhlutverkið, á þessu byrjunarstigi, um þetta basl, að geta ekki sofið og vita ekki hvað maður er að gera,“ sagði Mendes sem leitar gjarnan ráða á netinu. „Ég skoða athugasemdakerfi þar sem aðrar mæður eru að ræða saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson