„Við höfum ekki sofið saman í fimm ár“

Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin. mbl.is/AFP

Þeir sem fylgjast með raunveruleikaþáttunum Keeping Up With the Kardashians hafa eflaust tekið eftir því að samband þeirra Scotts Disicks og Kourtney Kardashian er ekki alltaf dans á rósum. Sambandið virðist nú hanga á bláþræði en Disick missti sig nýverið og ljóstraði því upp að þau hefðu ekki sofið saman í fimm ár.

Rifrildi þeirra Disicks og Kourtney má sjá í nýjasta þætti af Kourtney And Khloe Take The Hamptons. Orðaskakið hófst þannig að Kourtney var ósátt við Disick fyrir að koma snemma heim úr meðferð. Hún bað hann vinsamlegast um að gefa sér næði en Disick tók því illa.

„Hversu mikið næði þarftu? Við höfum ekki sofið saman í fimm ár. Hver er munurinn. Í alvörunni. Ég elska þig, já, en ...“ sagði Disick.

Út á við virðist allt ganga vel hjá þeim Disick og frú en þau eiga tvö börn saman og svo er annað á leiðinni. En aðdáendur KUWTK vita að þau skötuhjú sofa alltaf hvort í sínu herberginu. Disick hefur þá einnig gert grín að því að í einu skiptin sem þau njóta ásta verður Kourtney ófrísk.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler