Dóri DNA lét Rás 2 heyra það í örgrín-þættinum Steypuvélinni. Hann sagði í þættinum að Rás 2 spilaði bara lög sem pabbi þinn hlustar á þegar hann er fullur og gerði stólpagrín að Óla Palla og segir hann spili bara U2 og lög með Neil Young að mati Dóra. Hann tók það líka sérstaklega fram að Óli Palli tæki svo endalaus viðtöl við hljómsveitir á Hróarskeldu sem öllum væri drullusama um.
Hægt er að hlusta á þetta dár, háð og spé HÉR.