Mariu Shriver líst illa á nýju tengdadótturina

Miley Cyrus og Patrick Schwartzenegger eru nýjasta Hollywood-parið.
Miley Cyrus og Patrick Schwartzenegger eru nýjasta Hollywood-parið. AFP

Eitt nýjasta Hollywood-parið er Miley Cyrus og Patrick Schwarzenegger. Patrick er sonur Arnolds Schwartzenegger og Mariu Shriver en Shriver virðist ekki vera nógu ánægð með nýju tengdadótturina.

Shriver hefur áhyggjur af syni sínum, sérstaklega eftir að hafa séð ljósmyndir úr afmælisveislu kærustu hans en Cyrus skreytti skemmtistaðinn þar sem afmælið var haldið með uppblásnum getnaðarlimum. Shriver er viss um að Cyrus muni hafa slæm áhrif á son sinn sem er 21 árs.

Heimildamaður HollywoodLife segir Shriver hafa „hryllt við“ myndunum úr afmælinu. „Þetta var það versta sem Cyrus hefði getað gert. Hún [Shriver] hefur miklar áhyggjur. Hún trúir því að þú sért sá sem þú hangir með, hún hefur alltaf verið svo ánægð með vini Patricks. Hún sá þetta ekki fyrir,“ sagði heimildamaðurinn.

Shriver mun líklegast ekki ná að stía syni sínum og Cyrus í sundur því Patrick er sagður hafa verið skotinn í Cyrus í nokkur ár.

Skreytti með uppblásnum getnaðarlimum

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant