Varði þakkargjörðahátíðinni í Malaví (myndir)

Madonna varði þakkargjörðahátíðinni í Malaví.
Madonna varði þakkargjörðahátíðinni í Malaví. AFP

Söngkonan Madonna varði þakkargjörðahátíðinni á munaðarleysingjahæli í Malaví. Þetta mun vera sama munaðarleysingjahæli og ættleiddu börnin hennar tvö bjuggu á.

Madonna hefur reglulega heimsótt Malaví eftir að hún stofnaði á sín­um tíma góðgerðarsam­tök­in Rais­ing Malawi sem m.a. vinna að því að út­vega munaðarlaus­um börn­um mennt­un. Madonna heimsótti svo Kondanani munaðarleysingjahælið í gær, hún fór ásamt tveimur börnum sínum, Mercy og David. Þau fögnuðu þakkargjörðarhátíðinni og skemmtu sér vel.

Madonna deildi ljósmynd á Twitter á meðan á heimsókninni stóð. Á myndinni situr Madonna í rólu og Mercy ýtir henni. Þá birti hún einnig mynd af Mercy og David fyrir utan gamla heimilið þeirra. „Heimurinn er á hvolfi. Verið þakklát fyrir lánsemi ykkar,“ skrifaði Madonna undir myndina.

Madonna heimsótti ekki aðeins munaðarleysingjahælið heldur skoðaði hún einnig Queen Elizabeth-spítalann og fundaði þar með þremur verðandi skurðlæknum. Madonna sló á létta strengi og heilsaði fólki að hætti innfæddra. „Muli bwanji,“ sagði hún og hló.

Modonna rólaði sér í Malaví.
Modonna rólaði sér í Malaví. Twitter
Madonna birti þessa sætu mynd af börnunum sínum.
Madonna birti þessa sætu mynd af börnunum sínum. Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant