Jay-Z og Beyoncé sögð á leið til landsins

Jay-Z og Beyonce
Jay-Z og Beyonce AFP

Vefsíðan Nútíminn segist hafa heimildir fyrir því að stjörnuparið Beyoncé og Jay-Z séu væntanleg til landsins til að halda upp á 45 ára afmæli rapparans. Þau muni lenda hér á landi á næstu dögum og dvelja í um viku.

Þau eiga að vera með íslenska leiðsögumenn á meðan á dvölinni á Íslandi stendur ásamt því að vera með íslenska öryggisgæslu að hluta. Lífverðir hjónanna verði með í för.

Eftir því sem Nútíminn kemst næst munu þau koma víða við á Íslandi og til stendur m.a. að þau fljúgi yfir eldgosið í Holuhrauni. Þá verður slegið upp afmælisveislu fyrir Jay-Z sem verður 45 ára fimmtudaginn 4. desember. Heimildir Nútímans herma að vinir hjónanna fagni afmælinu með þeim.

Frétt Nútímans af komu Jay-Z og Beyoncé til Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant