Raunveruleikastjarnan Kris Jenner er sögð hafa valdið dóttur sinni, Kourtney Kardashian, miklu hugarangri um helgina en Kourtney eignaðist sitt þriðja barn á sunnudaginn.
Samkvæmt heimildum RadarOnline.com mun Kris hafa verið óánægð með ákvörðun Kourtney að sjónvarpa ekki fæðingunni. Kris, sem er óhrædd við að láta skoðanir sínar í ljós, á að hafa grátbeðið dóttur sína og kærasta hennar, Scott Disick, um að hleypa sjónvarpsupptökufólki inn á fæðingardeildina til að mynda þegar barnið kom í heiminn.
„Kris vildi láta taka fæðinguna upp og Kourtney þurfti að rífast við hana til að fá næði. Kris vill hagnast á öllu því sem hún getur og auðvitað var þessi stóra stund engin undantekning,“ sagði heimildamaðurinn.