Söngvarinn Jón Jónsson lætur sitt ekki eftir liggja þegar kemur að því að gera góðverk. Á dögunum lagði hann leið sína upp í Heiðmörk til að höggva jólatré í fyrsta skipti á ævinni. Víking skoraði á hann að ef honum tækist að höggva tréð einn síns liðs fengi hann 250.000 kr. að launum til þess að kaupa fatnað fyrir Mæðrastyrksnefnd.
Eins og sést í myndbandinu hér fyrir neðan var hann óvenju meyr enda ekki á hverjum degi sem einhverjum tekst að gera góðverk fyrir 250.000 krónur. Hann ákvað að fara í F&F í Kringlunni, vegna þess að þar er hægt að fá svo mikið fyrir peninginn, og keypti jólaföt. Viðtökurnar voru sérstaklega góðar þegar hann mætti með fenginn.