Fékk risavaxinn reikning frá skattinum

Lil Kim hefur ekki borgað skatt af launum sínum frá …
Lil Kim hefur ekki borgað skatt af launum sínum frá árinu 2010. AFP

Fregnir herma að rapparinn Lil Kim hafi fengið himinháa sekt fyrir að greiða ekki skatt af launum sínum frá árinu 2010 til dagsins í dag. 

Gögn sem blaðamaður Life & Style komst yfir sýna að Lil Kim, sem heitir réttu nafni Kimberly Jones, skuldar um 15,8 milljónir króna til bandarísku skattstofunnar.

Lil Kim er greinilega ekki stödd á góðum stað um þessar mundir því nýverið lögðu fyrrverandi lögmenn hennar fram kæru á hendur henni og sögðu hana skulda sér laun upp á 2,3 milljónir króna. Lil Kim tapaði málinu og var gert að greiða lögmönnunum umrædd laun með vöxtum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson