Tónlistarmaðurinn Calvin Harris er greinilega fjölhæfur því hann var að landa stórum fyrirsætusamning við tískuhús Emporio Armani.
Harris er andlit nýjustu auglýsingaherferðar Armani og fetar því í fótspor Rihönnu en hún gegndi þessu hlutverki á sínum tíma. Í nýju auglýsingunum má sjá íklæddan fallegum jakkafötum frá Armani.
„Hann er ekki fyrirsæta sem gerir þetta einlægara,“ sagði tískuhönnuðurinn Giorgio Armani í tilkynningu um nýju auglýsingarnar.
Auglýsingaherferð Harris verður frumsýnd í janúar á næsta ári.