Söngkonan Ashlee Simpson og eiginmaður hennar, Evan Ross, eiga von á sínu fyrsta barni saman samkvæmt heimildum E!News. Simpson og Ross gengu í það heilaga í ágúst á þessu ári en móðir brúðgumans, Diana Ross, gaf þau saman.
Simpson á eitt barn fyrir, fimm ára dreng, með tónlistarmanninum Pete Wentz. Fregnir herma að nú eigi hún von á öðru barni sem mun þá verða þriðja barnabarn Diönu Ross.
Talsmenn þeirra Ross og Simpson hafa enn ekki staðfest að þau eigin von á barni.