Mótmælir ákvörðun Sony

George Clooney
George Clooney AFP

Framleiðslufyrirtækið Sony Pictures Entertainment tilkynnti nýverið að gamanmyndin The Interview yrði ekki gefin út vegna hót­ana sem hafa borist frá tölvuþrjót­um. Leikarinn George Clooney er óánægður með þessa ákvörðun og hefur nú hvatt Amy Pascal, aðstoðarforstjóra, til að gefa kvikmyndina út.

Kvik­mynd­in, sem fjall­ar um morð á for­seta Norður-Kór­eu, Kim Jong-Un, átti að vera frumsýnd í kvikmyndahúsum á jóladag en eftir að Sony bárust hótanir hefur þeim áætlunum verið breytt.

Clooney virðist vera óhræddur og vill sjá kvikmyndina. Hann greindi frá því í viðtali við Deadline.com að hann hefði hvatt Pascal til að gefa kvikmyndina út á einn eða annan hátt. „Settu hana á netið, gerðu hvað sem er til að gefa hana út. Ekki vegna þess að allir þurfa að sjá þessa kvikmynd heldur vegna þess að við ættum ekki að láta banna okkur að sjá hana. Það er aðalatriðið,“ sagði Clooney og benti á að allra síst ætti Kim Jong-Un að stýra því hvað Bandaríkjamenn horfa á.

Hót­an­irn­ar „ógn gegn þjóðarör­yggi“

Frum­sýn­ingu af­lýst vegna hót­ana

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson