Næstum helmingur Frakka vilja banna framleiðslu á franskri anda- og gæsalifur (Foie gras). Á seinni árum hefur gagnrýni á þessa framleiðslu aukist, en hún fer þannig fram að fóðri er troði með valdi ofan í fuglana.
Ný skoðanakönnun sem gerð var fyrir samtök sem berjast fyrir velferð dýra sýnir að 47% Frakka vilja láta banna þessa meðferð á fuglunum. Stuðningur við bann hefur aukist um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. 56% kvenna vilja láta banna Foie gras. Aðeins 29% svaranda sögðust vera tilbúin til að kaupa Foie gras í verslunum.
Sala á Foie gras er bönnuð í Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi.