Álfur ákærður fyrir ölvunarakstur

Maðurinn var klæddur eins og álfur.
Maðurinn var klæddur eins og álfur. Ljósmynd/Lögreglan í Riverdale

Blindfullur álfur verður ákærður fyrir ölvunarakstur í New Jersey.

Í frétt NJ.com segir að lögreglan í Riverdale hafi komið að hinum 23 ára gamla álfi, Brian Chellis, meðvitundarlausum undir stýri á föstudagsmorgunn. Chellis var klæddur í álfsbúning. 

Lögregluþjónn sem kom að manninum segir að hann hafi verið sofandi í bílnum en með kveikt á vélinni, ljósunum og tónlist. 

Lögregluþjónninn segir að Chellis hafi verið mjög ringlaður er hann var vakinn, vissi varla hvar hann væri og hafi byrjað á því að opna bjórdós. Hann var handtekinn en síðar sleppt. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson