„Molaskrifari ætlar ekki að hafa um þetta fleiri orð, en biður færeyska vini sína afsökunar á þessu sjónvarpsefni,sem ekki gerði mannlífi og menningu í Færeyjum nein skil svo sem verðugt væri,“ skrifar Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi alþingismaður og sendiherra, um sjónvarpsþáttinn Andri á Færeyjaflandri.
Umrædd þáttaröð var sýnd í sjónvarpi Ríkisútvarpsins og þykir Eið hvorki til þáttarins né þáttarstjórnandans, Andra Freys Viðarssonar, koma. „Fram hefur komið í fréttum að þættirnir Óskalög þjóðarinnar kostuðu Ríkissjónvarpið 35 milljónir! Fróðlegt væri að heyra hvað Færeyjaflandrið kostaði. Það hlýtur reyndar að hafa verið keypt óséð,“ skrifar Eiður á vefsvæði sitt.
Þá leggur Eiður það til að fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason verði gerður af örkinni „til að sýna Færeyingum, mannlífi og menningu á eyjunum átján þann sóma, sem þessi grannþjóð okkar verðskuldar.“ Vísar hann þar til þess að þættir Egils um vesturfarana voru gerðir eftir að Andri Freyr gerði sambærilega þætti frá Vesturheimi.