Sólarbrjóstahaldarar innkallaðir

Triumph International selur sólarknúna brjóstahaldara. Þrátt fyrir mikil fyrirheit og …
Triumph International selur sólarknúna brjóstahaldara. Þrátt fyrir mikil fyrirheit og hugmyndir um náttúruvernd þá virðist fyrirtækið hafa klúðrað grunn atriðum um hönnun brjóstahaldara og þurfti því að innkalla 20.000 slíka. AFP

Japanski undirfataframleiðandinn Triumph International þurfti í vikunni að innkalla 20 þúsund sólarknúna brjóstahaldara, en vír í þeim átti það til að gefa sig. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að viðskiptavinir séu hvattir til að hætta notkun þeirra til að koma í veg fyrir meiðsli.

Brjóstahaldararnir voru fyrst framleiddir fyrr á árinu, en hægt er að setja sólarrafhlöðu framan á haldarann sem getur meðal annars hlaðið iPod eða farsíma. Til viðbótar eru vatnspokar á brjóstahöldurunum, sem Triumph segir að eigi að koma í veg fyrir að eigendur þeirra þurfi að kaupa og ganga um með vatnsflöskur. Þannig séu þeir í raun að ýta undir umhverfissjónarmið með að minnka plast í umferð.

Þrátt fyrir mikil fyrirheit og hugmyndir um náttúruvernd þá virðist fyrirtækið hafa klúðrað grunn atriðum í hönnun brjóstahaldarana og þurfti því að innkalla 20.000 slíka. 

Sjá má mynd af brjóstahaldaranum hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson