Bandaríska kvikmyndafyrirtækið Sony Pictures er byrjað að dreifa gamanmyndinni The Interview á netinu en myndin hefur vakið mikla athygli að undanförnu.
Myndinni er dreift á vefnum seetheinterview.com sem og á Google og Microsoft en einungis í Bandaríkjunum. Myndin kostar 5,99 Bandaríkjadali ef hún er leigð en 14,99 ef hún er keypt.
Nokkur kvikmyndahús í Bandaríkjunum segjast ætla að sýna myndina á jóladag þrátt fyrir að Sony hafi hætt við að dreifa henni vegna hótana um hryðjuverk.
Samkvæmt frétt AP-fréttastofunnar segjast kvikmyndahús í Texas og Atlanta ætla að taka myndina til sýningar á jóladag. Sony hætti við að dreifa myndinni eftir að hótanir um hryðjuverk bárust vegna sýningar hennar.
Þá láku viðkvæmir tölvupóstar fyrirtækisins eftir tölvuárás sem bandaríska alríkislögreglan FBI telur runna undan rifjum norður-kóreskra stjórnvalda. Myndin fjallar um áform leyniþjónustunnar CIA um að ráða leiðtoga landsins af dögum og hafa stjórnvöld í Norður-Kóreu brugðist ókvæða við.
Michael Lynton, framkvæmdastjóri kvikmyndavers Sony, segir að myndinni verði nú dreift í takmörkuðu upplagi til ákveðinna kvikmyndahúsa.