Bandaríska tónlistarkonan Alicia Keys og eiginmaður hennar Swizz Beatz eignuðust son í gær. Keys greindi frá gleðifregnunum á Instagram-síðu sinni í dag og birti með fótspor drengsins.
Drengurinn hefur fengið nafnið Genesis Ali Deanen, fyrir eiga þau fjögurra ára gamlan son, Egypt. Beatz á alls fimm börn.
Keys greindi frá þunguninni á Instagram á fjögurra ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna í júlí.