Breski leikarinn David Ryall, sem er þekktur fyrir að hafa farið með hlutverk Elphias Doge í Harry Potter-myndinni Deathly Hallows, er látinn 79 ára að aldri.
Samkvæmt BBC lést leikarinn á jóladag en ekki hafa verið gefnar nánari upplýsingar um banamein hans.
Ryall á að baki hálfrar aldar feril í kvikmyndum, sjónvarpi og leikhúsi. Má þar nefna myndina The Elephant Man.