Fóru frá Íslandi til Taílands

Stjörnuparið bandaríska og Íslandsvinirnir Beyoncé og Jay-Z þurftu greinilega á hlýju loftslagi að halda eftir kulda og snjó á Íslandi fyrr í mánuðinum. Þau ákváðu nefnilega að skella sér í sólina á Taílandi þar sem þau hafa varið jólunum.

Slúðurmiðlar vestra greina frá því að Beyoncé hafi verið ófeimin að dreifa myndum af þeim frá Íslandi, meðal annars úr Bláa lóninu. En í stað snjómynda frá Íslandi setur söngkonan góðkunna inn myndir af sér þar sem hún situr á baki fíls og fleiri af þeim hjónakornum á ströndinni.

Með þeim í ferðinni er Blue Ivy, dóttir þeirra sem einmitt verður þriggja ára 7. janúar næstkomandi. Ekki er vitað hvort afmælinu verði fagnað í Taílandi eða að för þeirra um heiminn verði lengri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson