Hillary Clinton og Vladimir Pútín hafa lengi eldað grátt silfur saman. Í nýlegu viðtali í Kanada bætti Clinton nýju innleggi við þá eldamennsku með því að leika ímyndað samtal milli Pútín og rússneska forsætisráðherranum Dmitry Medvedev.
Samtalið fór svona:
„Vladimir, heldurðu að þig langi til þess að verða forseti aftur?“
„Ég held ég vilji það já“
Eftirherman gæti svo sannarlega verið betri en hún kom sér í það minnsta hjá því að svara spurningunni um forsetaframboð 2016.