Grey's Anatomy-stjarna að skilja

Patrick Dempsey fer með hlutverk Derek Sheperd í þáttunum Grey's …
Patrick Dempsey fer með hlutverk Derek Sheperd í þáttunum Grey's anatomy. AFP

Eiginkona Patricks Dempseys, sem leikur aðalhlutverk í þáttunum sívinsælu Grey's Anatomy, hefur nú sótt um skilnað frá eiginmanninum. Þau hafa verið gift í 15 ár en nú skilur leiðir, að sögn vikublaðsins Us Weekly

„Eftir að hafa farið vel yfir hlutina á jafningagrundvelli höfum við ákveðið að binda enda á hjónaband okkar. Fyrir okkur skiptir mestu máli að börnin okkar hafi það sem best og við biðjum um að fá að leysa úr okkar málum í friði á þessum erfiðu tímum,“ segir parið í tilkynningu. 

Jilian Flink, eiginkona Dempseys, á að vera sú sem sótti um skilnaðinn og krefst einnig forræðis yfir börnunum þeirra þremur. Að sögn fólks sem þekkir parið á Flink að hafa verið orðin leið á sjálfsáliti eiginmannsins, sem henni finnst vera komið út fyrir öll velsæmismörk. 

Dempsey leikur hlutverk læknisins Dereks Sheperds í þáttunum vinsælu. Hann hefur leikið í öllum ellefu þáttaröðunum sem gerðar hafa verið af þáttunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson