Hefur ekki enn fengið útborgað

Meghan Trainor hefur ekki fengið útborgað frá útgáfufyrirtækinu sem gefur …
Meghan Trainor hefur ekki fengið útborgað frá útgáfufyrirtækinu sem gefur út tónlist hennar. AFP

Poppstjarnan Meghan Trainor er ekki farin að lifa eins og sönn stjarna því hún hefur enn ekki fengið greitt frá útgáfufyrirtækinu sem gefur út tónlist hennar. Eitt vinsælasta lag hennar, All About That Bass, hefur því ekki skilað henni fúlgu fjár eins og margir búast eflaust við.

Söngkonunni hefur verið lofað góðum útborgunardegi í apríl en þangað til þarf Trainor að halda áfram að lifa látlausum lífsstíl.

„Ég hef ekki þénað neitt enn sem komið er. Fólk heldur að ég sé rík en ég er það ekki,“ sagði söngkonan í viðtali sem birtist í Daily Star Sunday-dagblaðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant