Leikkonan Lupita Nyong'o er hætt með kærasta sínum, sómalska rapparanum K'naan. Nyong'o er þá sögð vera komin í nýtt samband með hjartaknúsaranum Jared Leto.
Sá orðrómur komst á kreik í mars á seinasta ári að Nyong'o og K'naan ættu í ástarsambandi en heimildamaður Us Weekly segir þau hafa hætt saman rétt fyrir áramót.
Nýjustu fregnir herma þá að neistar séu að kvikna á milli Nyong'o og leikarans Jareds Letos en þau sáust saman í eftirpartíi eftir SAG-hátíðina sem haldin var á sunnudaginn. Sjónarvottar sögðu þau hafa daðrað og dansað hvort við annað allt kvöldið.