Flaggaði öllu í Miss California-keppninni

Chanelle Riggan lenti í óskemmtilegu atviki á sviðinu í Miss …
Chanelle Riggan lenti í óskemmtilegu atviki á sviðinu í Miss California USA-keppninni. tmz.com

Chanelle Riggan, ungfrú Beverly Hills, flaggaði öllu í Miss California USA-keppninni sem haldin var 11. janúar. Þegar Riggan steig á svið í bikíní-hluta keppninnar losnaði toppur hennar af. Riggan reyndi að láta eins og ekkert hefði í skorist en dómarar keppninnar voru ekki hrifnir.

Riggan lenti í fjórða sæti og einhverjir vilja meina að hún hefði átt að komast lengra áfram. Aðrir telja að Riggan hafi losað toppinn viljandi.

Til að kóróna allt saman þá missteig Riggan sig í látunum. Atvikið náðist að sjálfsögðu á myndband og á því má heyra aðstandendur hennar fagna þegar hún heldur áfram að ganga tískupallinn.

Myndbandið birtist á heimasíðu TMZ í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson