Sækir um skilnað í þriðja sinn

James Caan og Linda Caan hafa verið gift í 18 …
James Caan og Linda Caan hafa verið gift í 18 ár. dailymail.co.uk

Leikarinn James Caan sótti nýverið um skilnað við eiginkonu sína, Lindu Caan, til 18 ára. Þetta er í þriðja sinn sem James sækir um skilnað við Lindu.

James skilaði skilnaðarpappírunum inn í byrjun janúar og fór fram á forræði yfir yngri syni þeirra sem er 16 ára, eldri sonur þeirra er 19 ára.

Fregnir herma að hjónin hafi ekki gert kaupmála fyrir brúðkaupið.

Eins og áður sagði er þetta í þriðja sinn sem James sækir um skilnað við eiginkonu sína. Árið 2005 sótti hann fyrst um skilnað og svo aftur árið 2009. Í bæði skiptin var málið fellt niður af einhverjum ástæðum.

James er greinilega þaulvanur í þessum málum því hann hafði verið giftur og skilið þrisvar sinnum áður en hann gekk að eiga Lindu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson