Sagður hafa keyrt á ljósmyndara

Chris Martin er sagður hafa keyrt á ljósmyndara um helgina.
Chris Martin er sagður hafa keyrt á ljósmyndara um helgina. AFP

Söngvarinn Chris Martin er sagður hafa keyrt á ljósmyndara á sunnudaginn fyrir utan veitingastaðinn Giorgio Baldi í Kaliforníu. Martin borðaði kvöldverð með fyrrverandi eiginkonu sinni, Gwyneth Paltrow, og börnum þeirra á veitingastaðnum. Þegar þau komu svo út biðu þeirra nokkrir ljósmyndarar og þá mun slysið hafa átt sér stað.

Hringt var á sjúkrabíl og ljósmyndarinn var fluttur að sjúkrahús. Einhverjir vilja þó meina að maðkur sé í mysunni því atvikið náðist ekki á góða mynd þrátt fyrir að svæðið hafi verið morandi í ljósmyndurum.

Fyrir utan slysið munu þau Martin og Paltrow hafa skemmt sér konunglega með börnum sínum þetta kvöldið. „Það er sjaldgæft að sjá þau svona. Venjulega er einhver fjarlægð á milli þeirra en þetta kvöld létu þau eins og hamingjusöm fjölskylda,“ sagði heimildamaður X17Online.

Talsmaður Chris Martni hefur ekki tjáð sig um slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson