Grey er kominn út úr skápnum

Joel Grey í Kabarett.
Joel Grey í Kabarett. Skjáskot

„Ég er samkynhneigður,“ sagði bandaríski skemmtikrafturinn Joel Grey sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Kabarett sem sýndur var á hvíta tjaldinu árið 1973. Grey er 82 ára og á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni.

Grey opinberaði kynhneigð sína í viðtali við bandaríska tímaritið People en einnig að að fjölskylda hans hefði vitað af þessu í áraraðir. Hjónabandi Grey og Jo Wilder lauk árið 1982 en þá höfðu þau verið gift í 24 ár.

Í viðtalinu sagði Grey einnig að þegar hann hóf störf í skemmtanabransanum hafi verið ómögulegt að koma út úr skápnum. „Ég hefði ekki átt neitt líf, eða feril, það var of hættulegt þá.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant