„Stórum stelpum gengur betur í gríninu“

Rebel Wilson telur að það sé auðveldara að hlæja að …
Rebel Wilson telur að það sé auðveldara að hlæja að feitu fólki. AFP

Ástralska leikkonan Rebel Wilson er í yfirþyngd en hún segir aukakílóin hafa hjálpað sér að komast langt í kvikmyndabransanum. Wilson greindi frá þessu í opinskáu viðtali á dögunum.

Wilson telur að „stórum“ stelpum gangi betur í gamanleik og því hyggst hún ekki fara í megrun á næstunni.

„Stórum stelpum gengur betur í gríninu. Ég veit ekki af hverju. Kannski er það vegna þess að fólki finnst þá auðveldara að hlæja. Það er mjög erfitt að hlæja að einhverjum sem er virkilega aðlaðandi, að mínu mati. Og vanalega hefur það [aðlaðandi] fólk ekki frábæran persónuleika,“ sagði Wilson í viðtali við Daily Life. Leikkonan var ekkert að skafa af því og náði að móðga bæði feitar og grannar konur á einu bretti.

Rebel Wilson er þekktust fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Pitch Perfect og Bridesmaids.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson