Sýndi hundinum heiminn áður en hann drapst

Gizelle og Lauren voru bestu vinkonur.
Gizelle og Lauren voru bestu vinkonur. Ljósmynd/Af Instagram

Þegar Lauren Fern Watt komst að því að hundurinn hennar, Gizelle, væri með krabbamein, ákvað hún að eyða restinni af ævi hundsins til að búa til minningar. 

Watt, sem starfar sem rithöfundur og almannatengill í New York, bjó til lista af hlutum sem hún vissi að Gizelle, rúmlega 70 kílógramma English Mastiff hundurinn hennar, vildi gera áður en hún myndi drepast.

„Ég vildi njóta síðustu mánaðanna með Gizelle og geyma minningarnar um lífið okkar saman, í stað þess að einblína á það að vera leið yfir því að hún væri með krabbamein,“ sagði Watt í samtali við BuzzFeed

Gizelle drapst í byrjun ársins, en þá höfðu þær stöllur upplifað ýmis ævintýri saman.

Tvíeykið fór saman í bátsferð, til heiðurs uppáhalds teiknimynd þeirra …
Tvíeykið fór saman í bátsferð, til heiðurs uppáhalds teiknimynd þeirra Litlu hafmeyjunni. Ljósmynd/Af Instagram
Lauren fór með Gizelle í morgungöngu í New York svo …
Lauren fór með Gizelle í morgungöngu í New York svo hún gæti notið borgarinnar án allra ferðamanna sem eru þar á daginn. Ljósmynd/Af Instagram
Stöllurnar ferðuðust til Maine til að bragða humar.
Stöllurnar ferðuðust til Maine til að bragða humar. Ljósmynd/Af Instagram
Lauren og Gizelle voru mjög nánar.
Lauren og Gizelle voru mjög nánar. Ljósmynd/Af Instagram
Gizelle komst í kynni við ástina í síðasta sinn þegar …
Gizelle komst í kynni við ástina í síðasta sinn þegar Lauren tók hana með í partí til vinar síns. Ljósmynd/Af Instagram
Gizelle var dekruð síðustu mánuðina sem hún lifði.
Gizelle var dekruð síðustu mánuðina sem hún lifði. Ljósmynd/Af Instagram
Gizelle og Lauren nutu jólanna saman.
Gizelle og Lauren nutu jólanna saman. Ljósmynd/Af Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant