Ýtti undir orðróminn

Bruce Jenner ásamt dætrum sínum.
Bruce Jenner ásamt dætrum sínum. Instagram

Orðrómur um að ólympíufarinn Bruce Jenner ætli að gangast undir kynleiðréttingu hefur verið á kreiki í þó nokkurn tíma en Kim Kardashian, fósturdóttir Jenners, hefur nú ýtt undir orðróminn.

Útlit Bruce Jenners hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum árum og telja sumir að hann sé að ganga í gegnum kynleiðréttingarferli.

„Ég held að Bruce ætti að segja sína eigin sögu,“ sagði Kim í viðtali við Entertainment Tonight þegar hún var spurð út í útlitsbreytingar Bruce. „Það ganga allir í gegnum eitthvað í lífinu og ég held að Bruce ætti að deila því sem hann er að ganga í gegnum sjálfur,“ útskýrði Kim. 

„Ég held að Bruce sé afar hamingjusamur. Hann er faðir okkar og við styðjum hann, sama hvað. Þegar rétti tíminn kemur held ég að hann tali um það sem hann vill taka um. Ég ætla bara að leyfa fólki að vera forvitið, hann þarf að tala um þetta ferðalag.“

Dætur Bruce Jenners standa greinilega með föður sínum í gegnum súrt og sætt því þær birtu mynd af honum ásamt systrahópnum á Instagram stuttu eftir að hann skrifaði undir skilnaðarpappíra hans og móður þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson