Berbrjósta gyðingur á kameldýri múslima

Chelsea Handler birti þessa mynd á Instagram í gær. Þarna …
Chelsea Handler birti þessa mynd á Instagram í gær. Þarna er hún stödd í Ísrael. Instagram

Grínistinn Chelsea Handler birti mynd á Instagram í gær sem hún tók í Ísrael þar sem hún er stödd þessa dagana. Á myndinni má sjá berbrjósta Handler sitja á kameldýri.

Handler, sem er gyðingur, er berbrjósta á myndinni fyrir utan tvær Davíðsstjörnur sem hylja geirvörtur hennar.

„Múslimi leyfði berbrjósta gyðingi að sitja á kameldýrinu hans. Og svo segjum við að við getum ekki lifað í sátt og samlyndi? Við ættum að reyna, geta og gera það. Og þú þarft ekki einu sinni að vera berbrjósta,“ skrifaði Handler við myndina.

Handler er stödd í Ísrael þessa dagana til að halda uppistand og til að taka viðtal við fyrrverandi forseta Ísrael, Shimon Peres. Þessu er greint fá á The Hollywood Reporter. Viðtalið við Peres verður hluti af heimildarmynd sem Handler mun gefa út í samstarfi við Netflix.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson