Ók um með sex kíló af maríjúana í 13 ár

Fimm pakkar af maríjúana höfðu verið faldir í hurð bílsins …
Fimm pakkar af maríjúana höfðu verið faldir í hurð bílsins sem konan hafði ekki grænan grun um að væru þar. mbl.is/afp

Kona nokkur í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum ók um með tæp sex kíló af maríjúana í fjölskyldubifreið sinni í þrettán ár án þess að hafa grænan grun um það. Það var ekki fyrr en fjölskylduvinur opnaði þil í bílhurðinni sem eiturlyfin fundust.

Bíllinn er af gerðinni Chevrolet, árgerð 1990, og keypti konan hann árið 2001 til að geta flutt börn dóttur hennar. Það var vinur fjölskyldunnar sem fann maríjúanað þegar hann var að gera við bílhurðina. Gat hafði verið skorið í hana og í því komið fyrir fimm pökkum af efninu sem vafið var í plast og álpappír.

Lögreglan segir að efnið sé svo gamalt að það sé verðlaust en konan var búin að aka um með það í þrettán ár.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant