Gríski söngvarinn Demis Roussos var borinn til grafar í Aþenu, höfuðborg Grikklands, í dag og fylgdu honum fjölmargir aðdáendur. Roussos seldi meira en sextíu milljónir platna um allan heim á ferli sínum.
Roussos lést á sjúkrahúsi í Aþenu, 68 ára að aldri, eftir nokkuð langa dvöl þar.
Þekktastur var Roussos fyrir lög sem hann gaf út á áttunda og níunda áratugnum, m.a. Forever and Ever, Goodbye og Quand je t'aime. Þá var hann einnig meðlimur rokkhljómsveitarinnar Aphrodite's Child.