Giftist gesti í staðinn

Indversk brúður undirbýr sig fyrir fjöldabrúðkaup.
Indversk brúður undirbýr sig fyrir fjöldabrúðkaup. AFP

Brúðkaupsathöfn hins 25 ára gamla Jugal og hinnar 23 ára gömlu Indiru var þegar hafin þegar brúðurin skipti skyndilega um skoðun.

 Hér var þó ekki um flóttabrúður að ræða því í stað þess að stinga af ákvað brúðurin að ganga að eiga gest í brúðkaupinu í stað brúðgumans.

Þessi uppákoma átti sér stað í Indlandi við brúðkaupsathöfn að hætti hindúa. Stuttu eftir að athöfnin hófst fékk Jugal flogakast og hneig til jarðar en í stað þess að stumra yfir verðandi manni sínum fauk í brúðina. Hvorki Jugal né fjölskylda hans höfðu upplýst Indiru um að hann væri flogaveikur og að sögn Buzzfeed lýsti hún því yfir í reiði sinni að hún vildi frekar giftast gesti í brúðkaupinu að nafni Harpal Singh en sá mun hafa verið mágur systur hennar. Þrátt fyrir að vera nokkuð brugðið og hafa hikað í fyrstu lýsti Singh því að lokum yfir að hann væri tilbúinn að giftast Indiru.

Í kjölfarið var brúðgumunum einfaldlega skipt út og athöfnin hélt áfram. Á meðan á athöfninni stóð var Jugal hinsvegar færður meðvitundarlaus á spítala og þegar hann vaknaði var unnusta hans gift öðrum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson