Madonna var í miðju lagi á sviðinu á Brit-verðlaununum í kvöld þegar hún datt skyndilega aftur fyrir sig, niður tröppur á sviðinu.
Eins og sú poppdrottning sem konan er hélt hún þó ótrauð áfram og missti varla úr línu. Fallið virðist ekki hafa verið skipulagt en allur salurinn sem og áhorfendur heima fyrir heyrðu hljóðið sem fylgdi fallinu vel.
Sem betur fer virðist Madonnu ekki hafa orðið meint af því hún lauk við að syngja lagið eftir að hafa losað sig við skikkjuna sem virðist hafa orðið henni að falli.