Smith systkinin koma á óvart

Jaden og Willow eru mestu mátar.
Jaden og Willow eru mestu mátar. AFP

Þau Willow og Jaden Smith eru ekki gömul en hvað sem hverjum finnst eru þau í það minnsta sjálf nokkuð viss um eigið djúpvitra ágæti og restin kemur engum við.

Þau systkini hafa verið að senda frá sér nýja tónlist í stökustu rólegheitum síðustu daga og virðast þau ekki hyggjast fylgja henni eftir með hefðbundnum hætti eins og auglýsingum, tónleikum eða einu sinni plötuútgáfu. Þrátt fyrir að mörgum finnist Smith systkinin frekar afkáraleg um aldur fram hafa lögin sem þau hafa birt á Soundcloud undanfarið þó hlotið nokkuð góða dóma. Hægt er að hlusta á þau öll með tölu hér að neðan og ákveða hvort krakkarnir séu í lagi eður ei.

 Þess má geta að hinn djúpraddaði Jaden er 16 ára gamall og Willow, sem þekktust er fyrir smellinn „Whip my hair“ er 14 ára. Þau eru að sjálfsögðu börn Will og Jada Pinkett-Smith.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant