Bernskuheimili bítilsins Paul McCartney seldist á 30,7 milljónir króna í gær. Húsið er í Liverpool og hefur að geyma þrjú svefnherbergi.
Húsið seldist á uppboði en byrjunarverð var 20,4 milljónir króna. Uppboðshaldarinn greindi frá því eftir uppboðið að margt fólk alls staðar að úr heiminum hefði sýnt húsinu áhuga en á endanum hefði húsið selst til bresks manns.
Það er ekki langt síðan hús bítilsins George Harrison seldist á uppboði fyrir 31,9 milljón króna.