Hárkollan kostar 1,3 milljónir

Julianna Margulies vildi ekki láta slétta hár sitt daglega fyrir …
Julianna Margulies vildi ekki láta slétta hár sitt daglega fyrir þættina The Good Wife. mbl.is/AFP

Leikkonan Julianna Margulies fer með hlutverk Alicia Florrick í þáttunum The Good Wife en þegar Margulies er í hlutverki Florrick skartar hún dökkri hárkollu í axlasídd. Hárkollan er afar dýr í rekstri en framleiðendur þáttanna greiða um 1,3 milljónir króna í viðhald á henni í hverri seríu og núna eru komnar sex seríur af The Good Wife.

„Mitt eigið hár er krullaðra en þau [framleiðendur] vildu að karakterinn væri með slétt hár,“ sagði Margulies í spjallþætti David Letterman. Margulies sagði þá að hún hefði haft áhyggjur af því hversu illa það fer með hár að slétta það á hverjum degi. Þá stakk hún upp á því við framleiðendur að hún fengi frekar vandaða hárkollu. „Það tekur bara 10 mínútur að setja hárkolluna á.“

Margulies er viss um að hárkollan hafi verið góð fjárfesting. „Það er sem svo frábært við hárkolluna er það að maður lítur alltaf eins út.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson