Vilhjálmur prins var klæddur upp sem samúræi af gestgjöfum sínum á japanska ríkisfjölmiðlinum NHK í dag. Prinsinn tók sig vel út en komst hjá því að setja upp hárkollu sem vanalega fylgir búningnum. Sá heiður féll í skaut sendiherra Bretlands í Japan, Tim Hitchens sem skellti henni á höfuð sér á meðan þeir skoðuðu sviðsmynd sjónvarpsdramans Taiga.
Seinna um daginn ferðaðist prinsinn til Fukushima þar sem hann hugðist hitta fórnarlömb skjálftaflóðbylgjunnar árið 2011.